Gestabók
1.7.2010 kl. 13:52
Komiði sæl og blessuð
Bið að heilsa liðinu á klakanum, og er ekki orðið tímabært að fara að koma með nýtt efni Tási minn!
Kristján G.
18.4.2010 kl. 22:32
Sæl og bless kem við hér af og til hafið það gott.kveðja Busi og solla
Hilmir Vígl
18.4.2010 kl. 18:00
Táásiiiiii!!
Hvað segja menn á vopnó þessa dagana? Er verið að sinna hestunum af einhverju viti eftir verksmiðjuruglið.
Hafðu samband og komdu út að temja í norge, það er nóg að gera.
Kristján G.
17.1.2010 kl. 18:46
Bara allt að gerast!
Hæ hæ fjölskylda!
Það er greinilega bara allt að gerast þarna hjá ykkur - gaman að það séu að koma svona margar myndir inn hjá þér Þráinn! :-D
Elva
16.2.2009 kl. 9:47
Brana orðin fín!
Hæ þið.
Það er aldeilis vel hugsað um hrossin, ekki að spyrja að því. Mér líst rosa vel á Brönu hina rökuðu, hún er bara svaka falleg, langur háls og elegant dama! Spennandi...
Takk kærlega fyrir mína :)
Hilda Karen
14.1.2009 kl. 21:41
Á farti um heimasíður!
Hæ hæ skötuhjú!
´
Er á farti um heimasíður, hnegg hnegg Þrási pjási kv. Harpa skarpa í baunalandi. Veit ekki allveg hvernig fer með þetta reiknisdæmi ; hver er summan af 4 og 6 vola!!!!!!
Harpa Wiium
14.12.2008 kl. 12:50
Sæll hrossi minn.kíki reglulega hér inn bið að heilsa.
Kv. Busi.
Hilmir Víglundsson
1.12.2008 kl. 18:43
Sæll
Kíki hérna inn oft og skoða myndirnar af hrossunum og ákvað að kvitta fyrir mig og gangi þér vel.
kveðja úr Skagafirðinum
Páll Ingi
30.11.2008 kl. 22:42
Taka hestana inn takk
Hæ, ég kem heim 6. desember og verð rétt fram yfir áramótin, er ekki möguleiki að taka hestana eitthvað inn á meðan ég verð heima? Laaaaaangar svo að ríða út!!
Elva syzz
30.11.2008 kl. 17:24
Taka hestana inn takk
Hæ, ég kem heim 6. desember og verð rétt fram yfir áramótin, er ekki möguleiki að taka hestana eitthvað inn á meðan ég verð heima? Laaaaaangar svo að ríða út!!
Elva syzz
23.11.2008 kl. 9:07
af hverju er Brana svona skökk ?
maggi
16.11.2008 kl. 13:52
Hæ hæ
Ég vildi bara þakka fyrir lánið á gerðinu þínu undir sláturhestana, en þú bjargaðir mér alveg....Kv Herdís Bakkafirði
Herdis Fjóla
9.11.2008 kl. 12:36
hæ hæ, kíkji reglulega hér inn, ákvað að kvitta nú einu sinni:) alltaf skemmtilegar myndir.
bestu kveðjur frá Egs.
María Ósk
29.10.2008 kl. 13:05
Fínar myndir
Sæl öll! Sammála Elvunni, gaman að skoða haustmyndirnar af hestunum. Ætlaði reyndar að athuga hvort þið ættum einhverja mynd af Brönu litlu, brúnstjörnóttu? Hlakka síðan voða til að hitta ykkur eftir rúma viku? Hvenær komið þið í bæinn?
Hilda Karen
22.10.2008 kl. 12:36
Skemmtilegar myndir!
Halló öll sömul, gaman að sjá myndirnar sem þið eruð að setja inn! Og flott hjá þér Þráinn að smíða stand undir gestabók til heiðurs Pétri!!
Hlakka til að sjá ykkur í borginni þegar við munum láta hendur standa fram úr ermum og láta dansinn duna!
Elva
16.8.2008 kl. 15:11
Katarina
Hello very nice webpage you have and many nice horses regards katarina
katarina
9.8.2008 kl. 11:10
Sæll Hrossi minn.
Hæ hæ.Sandra,Þrási og Hjálmar.
Kem reglulega hér inn til að ath hvað er að gerast hjá ykkur gaman að þessari síðu,gamgi ykkur vel bæbæ.
Kveðja Hilmir,Solla og Hekla Rán.
Hilmir Víglundsson
30.7.2008 kl. 17:39
Halló Sandra og Þráinn , til lukku með pallinn. Mér verður líklega boðið á hann þegar ég kem austur( sem verður vonandi áður en ég verð ellidauð)
Kærar kveðjur héðan úr 30 stiga hitanum í Kópavogi
Hildur Þöll
2.7.2008 kl. 22:50
Verður drukkið - eða verður drukkið?
ó já - sæll kæri bróðir..... það verður drukkið.... er haggi? Ég kem með nóg af bjór handa okkur og það verður byrjað að sötra um hádegi á laugardag, og konan sér um að keyra heim :-) Er það ekki díll?
Hlakka til að sjá ykkur!
Elva
15.6.2008 kl. 7:24
Sæll Þráinn.Eg rakst á síðuna þína fyrir tilviljun en er flott síða hjá þér ,Bið að heilsa Magna kv Brynjar Arnarsson.
Brynjar Arnarsson
11.6.2008 kl. 18:16
Sæll og bles..
Sæll Þráinn!! glæsileg síða og fallegir hestar. bara kasta smá kveðju í fjörðinn fagra og á ykkur á lónabraut, en við sjáumst hressir og vonandi fljótlega opnum við bauk saman fyrir austan?? kanski bara upp í húsi! en byð að heilsa.!!
kv. frá Akureyri
Steini
8.6.2008 kl. 17:44
..bíð enn...
...og er orðin verulega óþolinmóð að bíða eftir myndum af nýfæddu dömunni...
Hilda Karen
5.6.2008 kl. 13:02
Hvar eru myndirnar..??
Hellú öll sömul. Ég kíkti auðvitað á síðuna í þeirri von að sjá nýju myndirnar af hryssunni minni... en nei, ekki komnar inn. Verð víst að bíða lengur :(
Hilda Karen
13.5.2008 kl. 10:28
Sæll
Sæll Þráinn mögnuð síða hjá þér.. bara að kvitta fyrir komu mína :)
Sveinbjörn
3.5.2008 kl. 10:23
Hæ hæ ég datt inn á þessa síðu á mínu hestavafri á netinu. Féll alveg fyrir þessum innréttingum í hesthúsinu hjá ykkur, hvaðan eru þær?
Sjáumst svo á reunioni Sandra ;O)
Hjördís Rut
1.4.2008 kl. 22:18
Sælir þeð!
Var að smella inn myndum frá hjólatúrnum í sumar, má nálgast þær á síðunni minni.
Jörgen
18.2.2008 kl. 18:19
Dem.....
ýtti á vitlausan takka.....
hann verður víst 34 :-)
Elvz
18.2.2008 kl. 18:18
Hann á afmæl´í dag....
Hann á afmæl´í dag,
hann á afmæl´í dag,
hann á afmæl´ann Þráinn,
hann á afmæl´í dag!
Hann verður gamall í dag,
hann verður eldri í dag,
Hann verður 33 ára´ann Þráinn,
máttu eiga góðann dag!
Frumsamið,
litli rummungur!
Elvz
27.1.2008 kl. 10:53
Hressleikinn uppmálaður...
Hvorug þessara orða eiga við mig þessa stundina.... Er nývöknuð, sest við lærdóminn og byrjuð á atferlisgreiningunni. Þarf endilega að kynna þig námsefninu bróðir sæll. Brjálað veður hér í Keflavík en helgin búin að fara í leti, áfengisdrykkju og aflöppun (er hægt að hafa það eitthvað betra?)....
En allavega, þá var megin tilgangur þessara skrifa að kasta kveðju í fjörðinn og vona að þorrablótið hafi staðið undir nafni!
Vonast til að sjá ykkur sem fyrst,
lærdóms hesturinn!
Elva
7.1.2008 kl. 1:25
Fín síða.
Þetta er fín síða hjá ykkur, falleg hross,og myndarlegt fólk. (ég hringdi um daginn til að fá UPPLÝSINGAR, vegna gúmmí dúksins í stíunum)
KKV Siggi.
Sigurður Marinósson
27.12.2007 kl. 19:45
Gleðileg jól elsku Þráinn , Sandra og Hjálmar , skemmtileg síða . Flott nafn á merinni ÞÖLL :)
Hildur Þöll
24.12.2007 kl. 15:20
Gleðileg jól og áramót gott fólk.
Kveðja Stella og fjölskylda Grindavík
Stella
14.12.2007 kl. 22:11
Sæll Þráinn og takk fyrir innlitið. Því miður á ég eitthvað lítið af myndum af þeirri brúnu og móður hennar, en sendu póst á Sögu, 123.is/malbikshestar, hún á eitthvað af þeirri gömlu , held ég. Gangi ykkur vel þarna fyrir austan. Bestu kveðjur
Sara Ástþórsdóttir
2.12.2007 kl. 23:01
Alveg að koma....
Já þetta er alveg að koma hjá þér Þráinn minn.... en samt vantar smá uppá! Ég skal hjálpa þér þegar ég kem heim um jólin :-) Þá er ég að tala um að flikka aðeins uppá síðuna þína!
Ég get ekki beðið mikið lengur eftir að komast heim... þá er eins gott að bjórinn verði þar flæðandi.....
Bestu kveðjur úr bænum og af kraganum,
Rummi Rauðhaus!
Elva syzz.....
29.11.2007 kl. 13:12
Frábær síða
Frábær síða hjá ykkur... gaman að fá að fylgjast með :) flottar myndir
Helga Rós
23.11.2007 kl. 8:02
Flottar myndir úr vinnunni, skýrar og góðar, hvernig vél ertu með. Og hvernig fórstu að því að ná þeim bláu að vinnu eða var þetta kannski sviðsett :)
Maggi R
19.11.2007 kl. 22:22
Who are you
Rakst inn á þessa síðu gegnum spjallvef á Hestafréttum. En það stendur hvergi HVER ER MEÐ ÞESSA SÍÐU ?? Mér finnast það nauðsynlegar upplýsingar ef fólk vill auglýsa sig og hrossin sín. Gangi ykkur annars vel hver sem þið eruð??
????
10.11.2007 kl. 17:54
Silfrið
Sæl öll.
Já alltaf er hún jafn falleg blessuð síldin og gott að það er nóg af henni.
Sé núna að þú ert aðeins búin að breyta til hérna vinstra megin á síðunni, ætla að kíkja á það.
Bestu kveðjur
-Hilda.
Hilda Karen
7.11.2007 kl. 23:24
GAMLI
Sælir bara að krota eitthvað hér inn,kem oft inná þessa síðu,sjáumst kannski á milli Jóla og ný........
Kær kveðja.
Himir,Solla og co.
Hilmir Víglundsson
8.9.2007 kl. 16:48
Jó jó jó!
Halló!
Vildi bara kasta á einni kveðju, þið eruð velkomin í kotið á varnarsvæðinu!
jó Sistah!
5.9.2007 kl. 21:03
til hamingju
Nýr Hrímnir með öllu.! 200kall..!
ekki blánkir á vopna..
Gestur..!
3.9.2007 kl. 17:41
Takk elskurnar!
Ha ha, mætti halda að ég væri algjör gribba, þið þorið ekki annað en að hlýða þessu með myndirnar...! En jiii, nú fyrst verð ég öfundsjúk að hafa ekki skellt mér með ykkur en ég fer pottþétt til Sviss eftir 2 ár. Þið hafið þó greinilega skemmt ykkur vel, örugglega samt ennþá betur ef ég hefði verið þarna líka...
En annars, bestu kveðjur af suðvesturhorninu,
Hilda Karen.
P.s: Glanni glannalegi Glampasonur er í tamningu..ég bíð spennt eftir að heyra í greyið tamningamanninum..!
Hilda Karen
30.8.2007 kl. 11:52
Hæ hæ
Hæ hæ varð nú að kvitta fyrir mig hér, takk fyrir síðast í Hollandi. Sá síðuna ykkar hjá Ransý vinkonu minni heimurinn er svo lítill stundum.
Kveðja Stella, Grindavík
Stella og Co
23.8.2007 kl. 20:25
Hva....???
Hva, bara 11 myndir teknar í Hollandinu???? Koma svo!!!
Hilda Karen
24.6.2007 kl. 22:29
flott síða hjá ykkur
Sæll Þráin. Eigum við ekki að drífa í eigendaskiptunum á Frökk og Fröken, komdu með pappírana á FM ég kem þar á föstudeginum.
Jón Elvar H
Jón Elvar Hjörleifsson
20.5.2007 kl. 15:14
Duglegur
Gaman að sjá hvað þú hefur verið duglegur að setja inn myndir af gæðingunum þínum :)
Elva
13.5.2007 kl. 13:00
Hryssa til sölu
Er hryssan fyrir vön börn og verðið á henni.Hvar er hún stödd.Kveðja Dagný Karlsdóttir.s.8633740.
Dagný
8.5.2007 kl. 18:19
Söluhross
Á ekkert að fara að setja söluhrossið inn á síðuna??? Þú ert kominn með myndir og allt maður!
Kv, Syzz....
Elva
4.5.2007 kl. 10:52
myndarleg afkvæmi
Þetta eru aldeilis myndarleg afkvæmi.... folöldin, krummaungarnir... en myndarlegastur er þó ungi knapinn.... Bkv að norðan, Berglind og co
Berglind
29.3.2007 kl. 18:40
Hvernig er það....
á ekkert að fara að koma eitthvað nýtt inná þessa síðu eða hvað???
Elva
16.3.2007 kl. 14:38
Frk. Forstöðukona.....Hafðu samband við Stebba útaf uppþvottavélinni......núna strax
kv
frá Danmörku
Stebbi stór frændi
19.2.2007 kl. 12:17
Á ekkert að fara að monta sig?
Ætlaru ekkert að fara að monta þig á því sem við erum að fara að gera í sommer??? :)
Ég er sko farin að monta mig :)
Elva syzz
17.1.2007 kl. 12:02
Flott heimasíða
Flott heimasíða og flott hesthúsið ykkar fínar breytingar.
Kveðjur úr Vestur-Húnavatnssýslu
Lísa
16.1.2007 kl. 16:37
Hneggjandi kveðjur
Fór að þvælast inn á heimasíðuna ykkar, æðislega flottar breytingar á hesthúsinu. Var að fá innréttinguna mína setta upp í gær, svo nú fer vonandi að bresta á að hægt sé að taka inn hross. Hilda fékk inni til bráðabyrgða í öðru húsi. Vona að við látum verða af því að fara í hestaferðina í sumar.
kveðja Dagný
Dagný Bjarnadóttir
7.1.2007 kl. 9:55
Árið.
Gleðilegt ár og takk fyrir gömlu.
Allt gott að frétta héðan.
Biðjum að heilsa .
Tóti og fjölsk.
Tóti frændi.
1.1.2007 kl. 15:06
Skemmtileg heimsíða hjá ykkur. Snyrtilegt hesthúsið ykkar til hamingju með það. Endilega kíkið við á síðuna mína
Lilja Sigurðardóttir
24.12.2006 kl. 12:03
Jólin
Hæ hæ.
Sætar myndir af litlu skötuhjúunum, mér finnst skvísan svakalega lík pabba sínum..! En bestu kveðjur úr rigningunni hér í Reykjavík!
Jólakveðjur,
Hilda Karen og Maríanna Sól.
Hilda Karen
9.11.2006 kl. 17:27
Vá hvað ég sakna hans....
HJÁLMARS....!!!!! Ég var ótrúlega ósátt með að hafa bara séð aftan á drenginn á þessum myndum sem voru að koma inn Þráinn!!!! Gerðu það fyrir mig að setja inn nokkrar myndir af litla uppáhalds frænda mínum!!!
Gerðu það!!!!
Systa kveður að sinni....
Elva
18.10.2006 kl. 11:38
Til hamingju með hesthúsið og síðuna . Alveg frábærar myndirnar af honum Hjálmari frænda mínum. Fallegur og hressilegur drengur . Vonandi hitti ég ykkur í sumar
Hildur Þöll
12.10.2006 kl. 22:12
Svakalega fínt hesthús!
Jæja, til hamingju með frábærar breytingar á hesthúsinu. Nú er eins gott að fara að taka inn einhverjar bykkjur og ríða út. En samt, Þráinn, greinilegt að pabbi þinn hefur gert þetta nánast einn og Magni kannski smá, allavega ert þú ekki á neinni mynd...
Hilda Karen
8.10.2006 kl. 18:42
Kveðja frá Reykjavík
Til hamingju með hesthúsið. Það er orðið glæsilegt og hlökkum við til að skoða það þegar við komum heim. Sjáumst vonandi fljótlega.
Kveðja Sandra og Hjálmar í Reykjavík
Sandra og Hjálmar
7.10.2006 kl. 19:35
Hamingjuóskir
Þráinn og co til hamingju með breytinguna frábært hesthús.Kveðja kristján Eggert og co.
Kristján Eggert Guðjónsson
7.10.2006 kl. 17:12
Það fera að koma myndir. Búinn að vera í vandræðum með tölvuna
þráinn Hjálmarssom
7.10.2006 kl. 15:46
Það kom að því.
Til hamingju með breytingarnar á hesthúsinu. Sá myndir á síðunni hjá Bjarka. Ég sá að það hefur verið baukað svoldið í reisugillinu. Hvað á að gera við frítíman núna?
Allt gott að frétta héðan frá 740 PARADÍS
Biðjum að heilsa.
Tóti frændi
27.9.2006 kl. 22:23
Til lukku
Sæl verið þið.
Takk fyrir síðast.
Mig langaði bara að óska ykkur til hamingju með breytingarnar í hesthúsinu, þetta er skrambi flott þó að ég ég hafi ekkert vit á hestum. Takk fyrir reiðtúrinn í sumar.
Vona að vel gangi fyrir sunnan hjá ykkur. Þið eruð enn þar, Sandra og Hjálmar, er það ekki?
Kveðja Harpa og co.
Harpa
20.9.2006 kl. 23:35
Heilir og sælir.
Komið blessuð og sæl !!!! Það er klikkar ekki myndatakan hjá þér gamli minn,með myndir af kellu og öllum pakkanum,bið að heilsa ykkur.
Og Sandra ég þakka fyrir innlitið á með þú varst í Reykjavík.:)
Kær kveðja.Hilmir Vígl.
Hilmir Víglundson.
19.9.2006 kl. 10:52
Þar kom það!
Loks kom það sem ég var að bíða eftir... myndir af frúnni;).. Annars fínar myndir og gaman að skoða...
Bið að heilsa öllum
kv Berglind
Berglind
24.8.2006 kl. 20:57
Við söknum þín
Halló:
Við kíkjum reglulega á síðuna til að fylgjast með framkvæmdunum. Vonandi sjáumst við bráðum.
Kveðja Sandra og Hjálmar
Sandra og Hjálmar í Reykjavík
9.8.2006 kl. 23:07
Gaman...
Hæ öllsömul!
Það var voða gaman að sjá aftur allar myndirnar úr hestaferðinni okkar. Það rifjaðist upp hvað var hrikalega gaman, alveg meiriháttar! Verðum að fara í aðra svona fljótlega :)
Bestu kveðjur,
Hilda.
Hilda Karen
2.8.2006 kl. 10:29
Heill og sæll,flottar myndir hjá þér,ekki hætta að taka myndir gaman af þessu hjá ykkur.
Kveðja Hilmir Vígl.
Hilmir Víglundsson
26.6.2006 kl. 20:12
Hvað er málið...
Blessaður félagi....
Það er ekki enn komið inn það sem þú sagðir að myndi koma inn.... uss!!!! Ég las fyrst... ,,Stórum áfanga náð.." og ég spenntist öll upp maður... en NEI.... Það var bara einhver HESTHÚSBREYTING!!!! Ég er ekki sátt með þig bróðir sæll.. illa vonsvikin... en ég er farin að sofa... búin að vinna frá mér allt vit í dag, hlakka til að sjá þig á morgun, er að koma heim að knúsa Hjálmar og fleiri!!!!
Elva hómí
18.6.2006 kl. 12:37
Sæll þetta er að verða eins og á 4 stjörnu Hóteli hjá þér,verður ekki slæmt að taka einn kaldan með þér í sumar á setrinu þínu.
Kv.busi:)
Himir Víglundsson
16.6.2006 kl. 0:06
Flott Síða
ég datt inn á þessa flottu síðu á netinu
Bestu kv
Guðjón
Guðjón Ólafsson
28.5.2006 kl. 22:49
Fyrsta folaldið
Jæja, Sunna gamla klikkar ekki, búinn að kasta fyrsta folaldinu þetta vorið hjá ykkur. Vonandi koma svo fljótlega fleiri hjá ykkar merum. Treysti á að myndir af þeim komi snarlega inn um leið og eitthvað gerist og auðvitað nýjar myndir af Stjarna litla.
Bestu kveðjur,
Hilda.
Hilda Karen
27.5.2006 kl. 9:01
Sæll og blessaður Glommi minn,það aðeins of langt á milli mynda hjá þér enn þér er fyrirgefið ef að það var ekki nein vél til staðar,enn satt að segja hélt ég að þú værir bara búin að gleyma síðunni þinni:)
Kveðja Hilmir Vígl og Co.
Hilmir Víglundsson
26.5.2006 kl. 11:26
Það fara að koma myndir. Var að fá myndavélina heim
þráinn Hjálmarsson
25.5.2006 kl. 14:54
Hvað er þetta...
Er ekki að fara að koma neit nýtt á þessa síðu gamli???
Elva syzz
21.5.2006 kl. 22:48
Ég kem til með að fylgjast með framkvæmdum og hestamennskunni. Takk fyrir þetta.
Þröstur
8.5.2006 kl. 22:17
;)
Halló, fín síða en það er eitt sem vantar sárlega... myndir af frúnni... iss hún hefur lúmst gaman af því....
kv Berglind
Berglind
30.4.2006 kl. 10:17
Sæll flott hjá þér að vera með síðu.Til hamingju með það.
Kveðja busi og co.
Hilmir Víglundsson
18.4.2006 kl. 11:49
Tási flottur!
Fékk heimsókn frá þráni hingað suður um daginn, og það er skemmst frá því að segja að hún snerist aðallega um tryppið sem keypt var frá Feti.
Þrælmyndarlegur foli þar á ferðinni!
(trippið ekki þráinn!)
Til lukku með síðuna og farðu svo að skella á netið videoinu og myndunum sem þú tókst af lullaranum frá feti heh he.
Kristján G.
8.4.2006 kl. 20:49
Blessahhh!!
Sæll vert þú bróðir góður,
um hesta ert þú býsna fróður.
....................
Það býr innra með mér soddan hagyrðingur... en þú færð framhaldið seinna!
Fariði nú að drífa ykkur til Vopnafjarðar, kjéllingin er mætt í bæinn!
Kveðja, Elva og Pabbi!
Elva systir
29.3.2006 kl. 22:17
Til lukku með þetta
Bara flott !! það verður gaman að kíkja hérna inn.
takk fyrir mig
er búinn að setja link á síðuna.
Bjarki Björgólfsson
27.3.2006 kl. 12:16
vuhúú
Til hamingju með síðuna, lítur mjög vel út. Vera svo dugleg að uppfæra.
Kíkið endilega á heimasíðuna hennar Maríönnu, hún var að keppa í fyrsta skipti á vetrarleikum í Fáki. Keppti í pollaflokki á Fönix (var nú ekki alveg ein) og fékk verðlaunapening! Rosa montin, þetta var rosa merkileg helgi, þar sem hún missti líka fyrstu tönnina! Allt að gerast!
Hlakka til að sjá ykkur fljótlega í höfuðborginni.
Kv, Hilda Karen.
Hilda
26.3.2006 kl. 22:27
Hellúúú.. frábært framtak. Það er alltaf gaman að skoða flottar myndir. Hlakka til að skoða þessa síðu í framtíðinni. Verið dugleg að setja inn myndir. Knús og kossar til ykkar.
Kveðja Selma
Selma Dögg Víglundsdóttir
24.3.2006 kl. 9:41
Frábær síða, til hamingju!
Gaman að sjá hana Lífsu mína með folaldið. Ætlið þið að ríða á landsmót í Skagafirði?
Kveðja Dagný
Dagný Bjarnadóttir
23.3.2006 kl. 21:56
Skemmtileg síða í vinnslu!
Ég rakst á þessa síðu á flakki mínu um 123.is.Gaman að sjá hvað aðrir hestamenn eru að bardúsa:))) Takk fyrir mig.
Ransý
13.2.2006 kl. 0:18
Ætlar Sokki ekki að fara taka sig á í skeiðinu. ? Það stefnir allt í flotta síðu hjá þér, til lukku !!
M
10.2.2006 kl. 14:03
Til hamingju
hæhæ vildum bara óska ykkur til hamingju með þessa síðu. Flott !
Kveðja Inga og Lúlli
Fimshestar
